augnablikið sem það tekur

augu þín að blikka
tár þín að renna
hjarta þitt að slá
varir þínar að bærast
hugsanir þínar að eyðast
von þína að deyja út
lífsneistann að slokkna

er augnablikið sem skipti engu máli,
í lífi allra hinna..