Mér finnst alveg meiriháttar að heyra þessar fréttir af Sigur Rós. Reyndar er þetta mjög magnað “thing” með þetta band. Ég spilaði sjálfur í hljómsveit í 5 ár og við tókum upp í stúdíói í Mosó, það eru ca. 5 ár síðan ef mig minnir rétt, nema að Óli sem var með þetta stúdíó var að vinna í því að taka upp Sigur Rós (þá hétu þeir víst Victory Rose og voru lítið sem ekkert þekktir) og hafði á orði að þessir strákar ættu sko eftir að meika það. Frábær árangur og ekkert annað hjá strákunum, bara...