DAGSKRÁ Á BÍLADÖGUM 2001 Bílaklúbbur Akureyrar býður ykkur hjartanlega velkomin á Bíladagana 15.-17. júní 2001. Hátíðin er fyrir löngu orðin vel kunn, enda hefur orðstír Bíladaganna borist víða og er það mál manna, að þeir séu bæði stærsta og besta dellumótið, sem haldið er á landinu ár hvert. Markmið Bílaklúbbs Akureyrar fyrir Bíladagana nú í ár er að sjálfsögðu að gera hátíðina þá bestu til þessa. Vonumst við því til þess, að Bíladagarnir megi verða ykkur bæði ánægjulegir og...