Ef einhverjir hérna kannast við God Forbid (sem líklega eru allnokkrir), þá er hérna smá mpeg af atviki einu sem gerðist á tónleikum með þeim 8. december (ég veit ekki hvar). Þið hafið e.t.v. heyrt af þessu… Hér er mpeg-skráin:

www.godforbid.com/y2k/g4brawl1.mpg (um 5 MB)

Þetta er það sem maður getur kallað “fucked up” þar sem þarna eru einhverjir gaurar að sparka nokkrum sinnum í eina stelpuna þarna, og það nokkrum sinnum í andlitið á henni.

Reyndar stóð, þar sem ég fann þessa skrá, að stelpan hefði byrjað með einhverju rugli og hafi verið að sparka í einhverja (ég veit ekkert um það). Lesið meira um það hérna, members.boardhost.com/god…/504.html, á töflunni á heimasíðu God Forbid.

Það sem ég tek líka eftir á þessu myndbroti, er að hljómsveitin heldur bara áfram að spila, þrátt fyrir að það sé verið að sparka í hausinn á einni stelpunni 2 metrum fyrir framan þá… Þær hætta þó eitthvað um 20 sekúndum eftir að lætin byrja, sem er að mínu mati allt of seint…

Kíkið á þetta og kommenterið!

Þorsteinn
Resting Mind concerts