Langaði bara að segja þér að vera ekki að eltast við nokkra þúsundkalla heldur kaupa þér almennilegan spilara….það marg borgar sig. Ætla ekki að vera með neina sleggjudóma um hvað bestu spilararnir eru, sjálfur á ég Pioneer og búinn að eiga hann lengi, hefur alltaf virkað mjög vel. Ég held að ég geti haldið því fram að þeir séu ekkert mikið ódýrari í útlöndum. Sjálfur er ég í Svíþjóð og það er svipað verð hér.