Það er engin ein kisa betri eða verri en önnur, og það held ég að sé alls ekki hugsunin bak við ræktun eða hjá þeim sem kaupa sér ketti. Ég hef átt ketti alla mína ævi, og mér fynnst kettir yndislegir! Fyrstu 12 árin mín ólst ég upp með húskattar-læðu sem varð 21 árs gömul, það var mikill missir!! Stuttu eftir það var mér gefinn kettlingur sem átti hug minn og hjarta í 14 ár (og hans er enn sárt saknað) hann var líka húsköttur og alveg yndislegur og bráðgáfaður konungur!! Eftir að hann dó...