Skynjar tölvan diskinn þegar hún startar. Ef ég vissi ekki betur myndi ég halda að þetta væri kapla vandamál. Og að master og slave væru ekki rétt stillti
Ef að tölvurnar eru að nota netbios til að tala hver við aðra þá er það gert óvirkt þegar þú tengist netinu. Hugsanlega er það skýringin. Gætir sett upp host töflu þar sem nöfn tölvanna koma fram sem eru á localnetninu hosttafla er skrá sem heitir hosts með engri endingu. Og ætti að vera í einhverju undirskásafni frá system eða system32 (leitaðu) Skoðaðu hvaða ip tölur eru í notkun á hinum tölvunum sem eru á localnetinu Athugaðu hvort þær svara ping þegar þú ert tengd skipun í cmd ping ip...
Þetta getur verið öryggisstilling sem lokar á netið meðan þú ert tengdur internetinu. Ertu tengdur router eða ertu með mótald? Ip tölur netkorts þurfa að vera á sama sub neti til að geta talað saman án hjálpar routers. skipunin ipconfig /all gefur upplýsingar um hvaða ip tölur er u í notkun. (Gefið að þú sért að nota win98 eða nýrra windows kerfi) Í öllum tilvikum er fáránlegt að vera með fleiri en eina tölvu og nota mótald til að tengjast út. Routerar eru ódýrir þessa dagana og verja þig að...
Eru skrárnar sem þú vísar til í autoexec bat til? Það var allavega á win95 diskinum einhver forrit til að skipta um codepage. Lítur allt út eins og fontur sé í ólagi verður trúlega að keyra þetta í fullscreen
Trúlega hefur adaware fjarlægt spillihugbúnað sem hefur verið búinn að troða sér frekar ruddalega inn á ip staflann. Þannig að stýrikerfið finnur ekki ip staflann með góðu móti. Til er lausn http://www.iup.edu/house/resnet/winfix.shtm
Hefur þú skoðað hvort þetta sé hugsanlega hiti. Mögulega að örgjörvakælingin sé ekki nógu góð eða bios stilling gagnvart hita örlítið of fasísk. Þ.e. að vélin sé látin slökkva á sér við of lágan hita.
1. lesa README skrána yfirleitt fara módular á /lib/modules/<kjarni>/og svo eitthvað viðeigandi subdir/ Atha að ef þú ert að nota einhvern standard kjarna þá er módúllinn þýddur fyrir viðkomandi kjarna annars er til make skrá. Þú þarft hugsanlega að hafa slatta af kjarna source skrám til að byggja módúlinn rétt.
Hinsvegar er CentOs byggt á RedHat Enterprize server sem er vel stutt. Ef menn vilja setja upp alvöru server með lágmarks kostnaði og fyrirhöfn er það kannski kostur?
Þetta vandamál bendir mjög sterklega á minnið. Hugsanlega er það ekki vel sett í eða einfaldlega bilað. Ef þú átt annað minni prófaðu innsetninguna með því. Ef þetta er minnispar taktu þá annað burt.
Fer svolítið eftir því hvað þú ert með. Fedora myndi duga að sækja rpm pakkann á http://dag.wieers.com/home-made/apt/ en svo er auðvitað hægt að gera hlutina á einhvern annan hátt….
Hef verið að leika mér með vector linux setti hann upp á gamalli mitac tölvu á 1.7 gig hefði þurt 2.gig fyrir full install. Einn geisladiskur. Mjög ríkt sem desktop vél. KDE uppsetning. Mun sprækari en Fedora. Byggir á Slackware og getur notað pakka úr því kerfi. Gjörnýtir vélbúnað.
Þar sem allir eru að benda á þetta distro og hitt distroið þá vil ég benda á eitt sem er ansi gott. Það heitir vectorlinux. Það kemur á einum diski (soho). Það inniheldur meðal annars OpenOffice, Mplayer, KDE, Og að auki er það uppsett með bæði bittorrent client sem virkar bara mjög vel takk fyrir og emule client. (Ekki prófað hann neitt að ráði). Það er menu drifið uppfærslu kerfi ekki ósvipað apt. Þetta kerfi byggir á Slackware en bara mjög straumlínulagað. Virkar mjög vel á lélegu...
mplayer-1.0-39_pre6.rhfc3.at mplayer-fonts-1.0-6.at mplayer-skin-mini-0.1-11.1.at mplayer-skins-1.0-pre3_12.at mplayerplug-in-2.75-18.rhfc3.at Þetta eru þau mplayer rpm sem eru instalaðir hjá mér rpm -qa | grep mplaye
Já lestu leiðbeiningarnar sem heru í greininni um fedora uppsetningar eftir JReykdal. Til að diskurinn finnist þarftu ntfs stuðning. http://www.hugi.is/linux/articles.php?page=view&contentId=1854028
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..