Styrktartónleikar í þágu stríðshrjáðra Palestínumanna 10. maí n.k. Styrktartónleikarnir, sem fara fram í Hátíðarsal MH, hefjast klukkan 21:00 og standa til miðnættis. Þar koma fram hljómsveitirnar múm (sem er nýkomin úr tónleikaferð í Danmörku), Vígspá (sem nýlega gáfu út breiðskífuna. Neðan úr sjöunda heimi), XXX Rottweilerhundar (sigurvegarar Músíktilrauna Tónabæjar árið 2000), Andlát (sigurvegarar Músíktilrauna Tónabæjar árið 2001) og raftónlistarmaðurinn Skurken (sem nýlega gaf út...