Tónleikar: dordingull.com 2 ára, útgáfa Elexír ofl Föstudagsbræðingur í tilefni afmælis dordingull.com

dordingull.com er að verða 2 ára og til að halda upp á það verða haldnir tónleikar á föstudaginn (23.mars) á Kakóbarnum Geysi. Á tónleikunum spila hljómsveitirnar Elexír, Snafu, Changer og Moussaieff. Þetta eru fyrri tónleikar af 2 sem haldnir verða í tilefni afmælis dordingull.com

Tónleikarnir eru sérstakir að því leiti líka að þetta eru útgáfutónleikar hljómsveitarinnar ELEXÍR sem var í 3 sæti músíktilrauna tónabæjar í fyrra. Geisladiskurinn sem bandið sendir frá sér heitir einfaldlega Elexír og inniheldur 8 lög sem tónleikagestir fá að heyra í tónleikunum. Diskurinn er gefinn út af Harðkjarna útgáfunni, og verður seldur á tónleikunum. Aldurstakmark 16 ára ekkert rugl, ekkert bull og frítt inn.