Ég held að þetta hárvesen á kisunni þinni megi rekja til baðsins, að baða kisuna á hverjum laugardegi er of mikið. Kisurnar hreinsa feldinn á sér sjálfar og það er ekki gott fyrir feldinn að vera þveginn reglulega. Mín kisa er hvít og hún fer í bað einu sinni til tvisvar á ári, og þá rétt fyrir jólin og kanski ef þess þarf einhverntímann seinna. Mín kisa bítur líka ef ég sýni henni ekki næga athygli, hún vakti mig þannig um daginn sem var ekki gott. Ég hef vanið mig á að segja NEI við...