Ég hugsa að þessi orð séu nú alveg til. Hyrnisskór er tildæmis bara skór úr hyrni/horni eins og hófur. Táliður hlýtur að vera liður á tá. Táfeti er sá sem gengur á tánum eins og til dæmis hesturinn gerir. Ferstrent er það sem er með fjórar hliðar eins og tildæmis ferstendingur/ferhyrningur. Glerungur er efnið sem er utan um tennurnar, ver þær og gerir harðar. Stuðkveðjur Dinni
Þetta er reyndar bara bull í mér en byggt á umræðum undir greininni um Mr. Ed. Þar ræðast Indjáninn og sigrún24 við um stjórnendur á hestar. Bæði telja sig vera stjórnendur þó svo að sigrún24 sé einungis nefnd undir ,,stjórnendur" hér á hestar. Gaman að þessu…
Ég giska á að það hafi ekki verið gert vegna hatrammrar baráttu sigrunar24 og indjánans um hvort er meiri stjórnandi á hestar. Annars er alveg kominn tími á að skipta…
ókibiss er ótrúlega svalt orð! Nú ætla ég að stroka ókeypis út úr orðaforða mínum og eilíflega nota ókibiss. Og svona til að fylgja efninu; kettir geta verið ótrúlega leiðinleg kvikindi en hundar geta það líka. Amen
Það vill nú svo til að ég hef verið í eiginlega nákvæmlega sömu skólum og móðir mín. Barnaskóla, farmhaldsskóla og nú háskóla… Ekki vegna þess að ég vilji vera alveg eins og hún heldur er þetta bara það sem virðist höfða til mín. Svo langar mig að koma á framfæri að Menntaskólinn að Laugarvatni er ekki eins slæmur og víða er af látið. Kennslan er fín ef þú hefur áhuga á að læra og félagslífið er á uppleið eftir dálitla lægð held ég megi segja. Eintómur áróður allstaðar á þessum síðustu og verstu…
Þetta er hárrétt. Svo má bæta við að eftir því sem að bylgjulegndin er lengri því orku minna er ljósið, þannig að útvarpsbylgjur eru orkuminnstar og gammageislar orkumestir.
Það er allvega alveg veðrið til að vera í ótemjureið eða hverju öðru útiverki núna. Ertu ekki annars á Ólafsvík eða eitthvað þannig… þá ætti að vera svona nokkuð svipað veður og hjá mér - gott veður.
Ég er nú enginn menntaður hestamaður en ég á svona hest og nota upp í hann stangir og það virkar bara sæmilega. Hann á það reyndar til að rjúka svo ákveðið að það er ekkert annað að gera en leyfa honum það og vona að hann stoppi við næsta hlið. En ég held að án stanga væri þetta mun verra. Gangi þér vel við þetta.
Þráinn, Ketill, Þorkell, Mörður, Lambi, Sigmundur og Sigurður. Þeir eru móðurbræður Gunnars á Hlíðarenda. vil benda þér á http://www.snerpa.is/net/isl/njala.htm Þetta er afar góður úrdráttur úr öllum köflum bókarinnar.
Já þó svo að einn hér segi að bæði bjúgu og bjúgur geti gengið þá mæli ég með ,,mörg bjúgu“. Hitt orðið ,,bjúgur” minnir mig allavega ævinlega á bólgna ökkla og sjómenn. Bólgnir ökklar eru held ég örugglega merki um skyrbjúgbjúg og sjómenn í gamla daga fengu stundum bjúg vegna þess að þeir fengu ekki nægilega mikið C-vítamín. C-vítamínskortur getur sem sagt leitt til skyrbjúgs. En bjúgu eru góð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..