Jæja.. Það er ekki langt síðan klárinn minn var orðinn alveg stjórnlaus en ég náði honum niður, en núna er hann að rjúka svona upp aftur verri en áður þegar hann ríkur og svo dauðþægur á milli, núna er bara nánast engin svörun í beislinu um að hægja niður ef hann er kominn um 3 metra aftur fyrir annan hest, fer bara upp á stökkið og stoppar ekki fyrr en ég hef pláss til að taka svegjustopp á stökki, oft jafnvel á harðastökki… Sem segir sig eiginlega sjálft að ég geri ekki nema í neið til að detta ekki af baki…

Áður gat ég í um 90% roku tilvika hægt hann niður og klárinn bara gaf eftir, en núna er ég búin að fá nóg þar sem núna síðast var fremur óvön stelpa með mér, og hafði ekki alveg stjórn á hraðanum.. Sem fór svoldið mikið í skapið á Þokka mínum.. Svo er hann að byrja að prjóna og sökkva til á stökkinu.. Þetta er að verða of mikið..

Svo núna er ég búin að taka áhvörðun, ég ætla að hætta þessari vitleysu, nei ég er ekki að hætta í hestamennskunni, ég ætla að nota stangir á hann ;Þ Þýðir ekkert annað.. Svo sé ég til hvort ég geti notað hringamél aftur í smalamennskurnar…

En annars ef þið vitið um einhver önnur góð ráð við rokum sem vesna bara endilega látið mig vita, hvað hefur vikað?
-