Jæja, gott fólk. Ég hef nokkrar spurningar fyrir ykkur! Ég er ekki kominn neitt sérlega langt í þessum leik en samt alveg nógu langt til að vita hvernig hann er. Ég er fighter/mage sem heitir Portije (er kominn lengst með hann) og ég á í smá vandræðum með sumt. Sko, ég á mjög erfitt með að komast að því hvernig er best að ráða við gaurana í bandalaginu “Harpers”. Er búinn að fara nokkrum sinnum til þeirra, spurður nokkra spurninga og svo ég bara hakkaður niður ásamt flest öllum hinum...