Ókei, ég var búinn að spyrja einnar spurningu hér áður og ekki er ég enn búinn að fá svar við henni þannig að ég set bara af stað annan kork! Ókei, Zetro kom með spurninguna hvað er að því að vera með eldri stelpu!! Hins vegar vil ég fá að spyrja að því hvað ykkur finnst um það ef 17 ára strákur(ég réttara sagt) byrji með 14 ára stelpu? Finnst ykkur aldursmunurinn eitthvað máli? Ef vinirnir eru á móti þessu ætti maður þá að sleppa þessu?

Segið mér til en ég veit að sumir eiga eftir að segja mér að fylgja hjartanu og ekki láta vinina hindra mig í að gera það sem mér finnst réttast! En það er einmitt það sem ég geri og einn vinur minn(sem er alltaf að gefa manni einhver ráð við hverju sem er) er nokkuð á móti þessu og ég er orðinn þreyttur á því að vera að gera hann alltaf svona ergilegan. Hann er skuggalega niðurdrepandi svona ergilegur. (Ég hugsa samt að ég muni láta gossa þótt að sumir eigi kannski eftir að lýta niður á mig)