Jæja, gott fólk. Ég hef nokkrar spurningar fyrir ykkur! Ég er ekki kominn neitt sérlega langt í þessum leik en samt alveg nógu langt til að vita hvernig hann er. Ég er fighter/mage sem heitir Portije (er kominn lengst með hann) og ég á í smá vandræðum með sumt. Sko, ég á mjög erfitt með að komast að því hvernig er best að ráða við gaurana í bandalaginu “Harpers”. Er búinn að fara nokkrum sinnum til þeirra, spurður nokkra spurninga og svo ég bara hakkaður niður ásamt flest öllum hinum köllunum. Hvernig í fjandanum á maður að ráða við þetta lið?
Svo er það annað: Ég er í holræsunum undir “Copper Coronet” og þrælaskipsins. Þar eru einhver rör og ég þarf að snerta rörin í einhverri sérstakri röð til þess að geta fengið eitthvað sverð. Ég er örugglega búinn að prófa allt og ekkert gegnur. Gaman væri að vita í hvaða röð þetta er.
Einnig er svo komið að mér gengur bara hálfilla. Ég er svona eiginlega fastur í upphafsborginni. Ég hef haft of mikið af verkefnum og verð að fá að vita eitthvað. Ég get valið á milli 2 hópa til þess að hjálpa mér að ná Imoen aftur. Spurningin er hvor hópurinn er skárri. Shadow Thieves eða hinn hópurinn sem heldur sér í kirkjugarðinum?
Og hvar í fjandanum er karlinn í rauðu sem grefur menn sem eru á lífi?

Ég veit að þetta getur flokkast undir svindl þannig að þið þurfið ekkert endilega að svara þessum spurningum. En ég mundi helst vilja fá að vita þetta með rörin og sverðið og einnig þetta með það að bjarga Imoen. Ef þið viljið ekki svara þá skuluð þið bara ekkert svara. En ef þið eruð með svo gott hjartalag að þið viljið hjálpa manni í “neyð”, þá endilega svarið ef þið getið.

Dengsi the Dreamer<BR