Jæja, ég ætla að gera útslagið í þessarri umræðu og ákvað að fletta þessu upp í Tónfræðiorðabók sem til er upp í hillu hjá mér. Þar fann ég e-ð um þetta… Tónmenntir A-K Diabolus in musica (lat.: ,,söngfjandi"), Skollabragð, í söngfræði miðalda úthrópað tónbil stækkaðrar ferundar, og er raunar enn í skólatónfræði, sökum þess hve ósönglegt, ólagrænt það er. Þetta grunntónbil einkennir lýdíska[note: dúr með stækkaðri ferund] tóntegund og er góður kunningi allra þeirra, sem iðkað hafa íslenskan...