Ég er alveg yfir mig hneykslaður á þessum Íshokkíspilurum sem slógust, þetta á að heita fullorðinir og þroskaðir einstaklingar en haga sér eins lítil frek börn í sandkassaleik.

Þarna voru fullt af yngri deildar krökkum að fylgjast með… og þetta eru fyrirmyndirnar… fullorðnir menn að slást eins og fífl!!!.

Ég vona að þessi menn fái langt keppnisbann og að þeir biðji opinberlega afsökunar á hegðun sinni og þá sérstaklega gagnvart yngri spilurunum sem þeir eiga að heita fyrirmynd fyrir.