Eins og margir vita eru tölvuleikir á borð við WoW, CS, DaoC, BF og margir aðrir, hrein fíkniefni.

Allir sem spila svona leiki og vita að þeir eru hooked eru í afneitun og eiga eftir að skíta yfir þessa grein.

Ég er bara 15 ára gamall þannig ekki halda að ég sé einhver fertugur kall sem er bitur yfir því að börnin mín eru meiri með tölvuni en mér.

Ég spilaði WoW, NWN, CS, RS og marga aðra ávinabindandi leiki og hef verið fastur í tölvuheim síðan ég var 11 ára.
Það eina sem hélt mér úti milli 11-13 var hjólabretti.
Ég var miklu meira í tölvuni en á brettinu, en ég hafði líka gaman að brettinu, svo að ég var ekki 24/7 í tölvuni.
Svo skeði það að hnéið á mér gersamlega eyðilagðist og engir læknar geta hjálpað mér með það.
Ég hætti á bretti og var þá bara í tölvuni.
Ég vaknaði, fór í skólann (Stóð mig illa og tossaðist), fór í tölvuna, borðaði 1 sinni almennilega á dag og fór að sofa.
Það er ekki normal líf. Maður þarf einhver önnur áhugamál sem geta stjórnað fíknini betur.

Þegar ég varð 14 ára frelsaðist ég frá einni fíkn yfir í aðra.
Áfengið.
Ég byrjaði að drekka og ekkert smá sem ég drakk. Tvisvar á viku (Laugardag og sunnudag) allar vikur, og hugsaði bara um helgina.
Ég fór út í glæpi og það sem því fylgir. Aldrei byrjaði ég að reykja né dópa samt, þó að ég var í hassi í stutta stund.

Þegar ég hafði verið að drekka í hálft ár kynntist ég boxinu, enþá 14 ára gamall.
Allt þetta gerðist í danmörku auðvitað, þar sem þetta er varla hægt hérna undir 16-17.

Þegar ég kynntist boxinu varð ég ástfanginn. Fjórða fíknin í lífi mínu. (Bretti, tölvan, áfengið, boxið)
Ég hætti að drekka jafn mikið og áður, var bara að stússast á msn eins og með drykkjuna.

Svo flutti ég til ísland síðustu jól og byrjaði í boxi hér.
Ég eyðilaggði í mér öxlina og fríkaði heldur betur út og lagðist í þunglyndi í 3 mánuði.
Eftir þrjá mánuði CONSTANT í WoW fór ég í frí til danmörku og let lose.
Ég drakk eins og svín og fór á eina box æfingu í gamla félaginu mínu þar.
Ég varð ástfanginn aftur og skreið aftur til boxsins þegar ég kom heim.

Ég varð yfir mig hrifinn að því að öxlin var bætt og ég passa mig núna mjög vel. Ég æfi 5 tíma á dag, 5 daga vikunnar.
Ég er búinn að gefa alla leikina mína.. Fór upp í skóla og kastaði WoW, NwN og half life2 í fólk og sagði að það mætti eiga þá, því að vera á msn og hafa allt ruslið í tölvuni og diskana á borðinu er eins og að vera crack fíkill með kókaín búta út um allt fyrir framan sig.

Takk fyrir mig, þetta var allt sem ég vildi deila með ykkur og vona að þið skítið yfir þetta svo að þið proofið pointið.
Moderator @ /fjarmal & /romantik.