Málið er að ég og vinur minn erum að leita okkur af distortion/overdrive pedal við sitthvorn magnarann.

Ég er með Orange Rocker 30w combo og langar í góðann metal pedal við hann. Hann er með frekar björtu overdrive (og fer út í vel gott crunch en samt bjart) og vantar einhvern góðann pedal til að getað fengið aðeins fjölbreyttari bjögun. Distortion, metal distortin eða bara overdrive ofan á mitt drive… veit ekkert hvað ég á að fá mér.

Vinur minn aftur á móti á von á Peavey Classic 50 og langar í góðann pedal við hann.

Erum ekkert að einskorða okkur við neina spes stefnu. Allt frá rólegu rokki uppi í argasta metal en erum að leita að pedal til að koma góðu þungu metal hljóði í málin.