Líka bara eitt. Þú munt dragast inn í vítahringinn hans sama hvernig þú reynir að koma þér út úr honum. Hann fer að biðja þig um pening, borgar þér það ekki aftur, gleymir sér í vímu, kemur engu í verki, allir hans peningar fara í dópið. Hver veit nema þú fáir handrukkara á eftir þér en þeir eiga það til að ganga á fólk sem er næstkomandi honum. Ókostirnir eru augljóslega fleiri en kostirnir… Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú leggur í einhverja vitleysu.