ég ætla nú ekki að segja að ég hafi verið sáttur við þennan valmöguleika könnunarinnar, en mér finnst hann alveg eiga rétt á sér. ritskoðun á huga er komin út í öfgar, ef stjórnanda líst ekki á skoðanir þess sem skrifaði greinina, þá er greinin ekki samþykkt. ef fólki líst ekki á skoðanir sumra á korkunum, eða í svörum við greinum, þá heimta sumir að það fólk verði bannað af huga - og það er oft gert. ég styð skoðanafrelsi á internetinu - og á huga.