Ah takk fyrir þetta, er enn að átta mig á þessu öllu saman. :) Bætt við 22. febrúar 2011 - 19:51 Oog ég kann ekki að breyta stillingunum á þessu, hvað sem ég skoða sýnir ekkert hvernig ég breyti privacy stillingunni á photo albuminu. :/
Hef enga beina sönnun, hef bara heyrt þetta allt of oft. Ég myndi allavegana frekar sjálf tala við einhvern sem þekkir táknin heldur en að velja þær úr bók á húðflúrsstofu imo.
Mér finnst svona asískt tákn í lagi ef þú ert 100% viss um hvað það þýðir (þó ég myndi líklega aldrei fá mér svona sjálf). Það hefur víst oft gerst að fólk fái sér svona tákn og þeim er sagt að þetta þýði eitthvað eins og “hugrekki” en svo þýðir þetta í raun “súpa” eða eitthvað álíka. Svo passaðu þig ef þú ert að pæla í þessu.
Trítla í Nethyl Dýrabær í Kringlu, Smáralind og Hlíðarsmára Dýraland í Spönginni og á móti Kringlunni Dýraríkið í Garðabæ Svo er einhver dýrabúð í höfðunum sem ég man ekki hvað heitir. Gæludýr.is í Korputorgi Furðufuglar og fylgifiskar á Borgarholtsbraut í Kópavoginum. Þetta er það eina sem ég man eins og er. Bætt við 24. janúar 2011 - 15:36 Og svo Fiskó, Dalveginum í Kópavogi.
Brúni maskarinn sem ég fékk í Body Shop um daginn er ljós miðað við flesta brúna sem ég hef notað, mæli alveg með honum. Þetta heitir bara Waterproof Mascara, með lit no. 02 sýnist mér.
Miðað við hvað þessir skór endast vel sem þeir eru að selja hjá army.is þá myndi ég segja að þeir séu 17 þús virði. Ég var með svona skó sem ég keypti hjá army.is sem entust í meira en 5 ár (og hefðu enst lengur ef ég hefði hugsað betur um þá, og ég notaði þá nánast daglega) svo ég fór og keypti mér nýja núna í sumar.
Hehe já mér fannst alveg stórskrítið þegar ég fór á staðinn og það voru bara engin lífstykki þarna. :P En.. T.d. þá er hérna saumakona sem tekur að sér að sérsauma http://www.v-couture.de/ , en þú verður bara að senda henni e-mail til að fá að vita verð og svoleiðis, ég skil ekki mikið í þýskunni á síðunni hjá henni. En deviantART síðan sem þessi manneskja er með segir að hún sé tilbúin til að sauma eftir pöntun; http://v-couture-boutique.deviantart.com/ . Vona að þetta hafi hjálpað...
Ég hugsa að þú þurfir að láta sérsauma fyrir þig ef þú vilt fá öðrivísi stærðir, flest svona fjöldaframleidd lífstykki passa bara fyrir algengustu stærðirnar. Annars er Lífstykkjabúðin á laugavegi ekki með nein lífstykki/corset svo ég viti. Ég kíkti einmitt þangað einhvertímann í von um að finna svoleiðis.
Ég mæli með Regal kattafóðrinu sem fæst í Dýrabæ. Ég er með mína á því og þeir eru svo fallegir í feldinum og borða ekki of mikið af þessu. 1980 kr fyrir 1,8 kg , 5690 fyrir 7,5 kg svo það er gott verð á því líka.
Haha nei ég skil þetta ekki heldur. Hunsa bara svona óþarfa komment hjá sumum. En takk fyrir. <3 Ég er eiginlega alveg hætt að vera í sokkum heima allavegana. Finnst alveg æði að horfa á fótinn á mér núna, hehe. :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..