Nei, það vinna ekki bara sjálfboðaliðar þarna. Það er fólk í vinnu þarna. En nei, köttum er ekki endilega lógað þarna nema eitthvað sé að kettinum; langvarandi veikindi og ef kötturinn er alveg villtur t.d. En það er náttúrulega ekki hægt að hafa allar kisur að eilífu hjá okkur. Núna er til dæmis alveg hellingur af kisum sem vantar heimili niðri í Kattholti. Flest fólk sem kemur til að ættleiða kisu vill náttúrulega frekar kettling heldur en fullorðinn kött, sem mér finnst fáránlegt satt að segja.