Jaaa…Ross er allavega ekki skemmtilegasti karakterinn, hann er svo vælinn að það er ekki fyndið. Eins og þegar hann var alltaf að væla yfir Emily, djöfull var hann leiðinlegur!<BR
Já, og ég er líka þreyttur á því að það sem kemur inn í púlsinn fer alltaf beint inn á forsíðu og ýtir öllu öðru út. Er ekki nóg að hlusta á þetta í útvarpinu?<BR
Annars er menningin á íslenskum börum alveg kostuleg. Maður sér til dæmis næstum aldrei neinn hanga við barinn og drekka bjórinn sinn þar, fólk sest alltaf niður úti í horni til að drekka. Ferðin á barinn er meira svona missjon til að ná sér í meira að drekka.
Kommon, þetta er ekkert spurning um þroska. Mín persónulega reynsla af dyravörðum er bara mjög slæm. Þess vegna finnst mér þeir bara vera algjörir hálfvitar.
Bíddu, erum við ekki að tala um sömu stelpuna? Þessi rauðhærða sem var með MH þarna í fyrra eða árið þar áður og tók aukaönn eða eitthvað í MH til að geta farið í Gettu betur aftur?
Hei, vóvóvó. Stelpan sem keppti fyrir MH er ekki myndarleg. Þetta var annars meira svona djók hjá mér, ég veit alveg að fólk sem vinnur Trivial Pursuit oftar en aðrir er ekki endilega gáfaðra, það veit bara fleiri gagnslausar staðreyndir en aðrir.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..