Akkúrat! Þegar ég var 16 skrópaði ég í skólann, sat á kaffihúsum, drakk 20 kaffibolla á dag, reykti frá mér allt vit, malaði við fólk og skrifaði skáldsögur. Þá var ég með ljóst hár sem náði niður að hnjám, alltaf í síðum pilsum með sjal og í háum leðurstígvélum. Stígvélin eru það eina sem er eftir. Í dag er ég 21, að klára vefhönnunarnám, vinn hjá fjölmiðli og er í þann veginn að stofna heimili. Ég er með dökkt hár og klæðist fremur plein, klassískum fatnaði. Ég var hjá lækni í dag og hann...