Ég var að pæla í einu, hvernig þekkjast þau??
Ross og Monica eru systkini,
Monica og Rachel=vinkonur í skóla,
Ross og Chandler= vinir í skóla
En hvað með Joey og Phoebe?
Ég býst við að Phoebe hafi bara verið vinkona stelpnanna en var hún ekki heimilislaus og á götunni einu sinni??
Joey var örugglega bara vinur strákanna eða bara annars, vitiði það?? Ég hef aldrei séð “flashback” með Joey, þegar hann var ungur.
Í hvaða seríu sjást Ross og Rachel fyrst saman??
Ég er búin að sjá nokkuð marga þætti en ég hef aldrei séð neinn þátt sem þau tvö eru saman :(
Ég gæfi allt fyrir að eiga vinkonu eins og Phoebe :) Hún er svo…
öðruvísi :)