Nú í gær var Nintendo í USA að senda frá sér tilkynningu um nýja tölvu sem kemur vonandi á markað seinna í ár. Beðið hefur verið eftir þessari yfirlýsingu lengi og þó að aðeins hafi verið gefnar litlar upplýsingar þá eru þær nóg til að hrista aðeins upp í leikjaheiminum. Nintendo hefur alltaf verið þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í gerð tölva, leikja og fylgihluta. Þessi væntanlega tölva er engin undantekning. Verður hún búin 2 skjáum og 2 mismunandi örgjörvum. Einnig fara þeir alveg...