Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

boran
boran Notandi síðan fyrir 17 árum, 7 mánuðum Kvenmaður
64 stig

Re: Oh pirrandi

í Rómantík fyrir 15 árum, 1 mánuði
já ég er algjörlega búin að beila á þeirri hugmynd haha.

Re: Tvær spurningar.

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
Hah búin að vera hér reglulega í vandræðalega mörg ár en hef breytt svo oft um nafn að ég efa að neinn muni eftir mér. sem er ágætt

Re: Sjálfstæðisflokkurinn.

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
þekki nokkra sem myndu kjósa hann. sjálf mun ég líklegast skila auðu, eitthvað mikið þarf að breytast til að ég krossi við einhvern flokk

Re: Dauði og djöf$&&

í Rómantík fyrir 15 árum, 1 mánuði
óþolandi! ég fer alltíeinu að beygja öll orð vitlaust þannig ég hljóma svo vitlaus haha

Re: Sálfræði :)

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
!!! held hann hafi ekki verið að meina þetta

Re: Natasha Richardson látin

í Fræga fólkið fyrir 15 árum, 1 mánuði
Æji já, ein uppáhálds leikkonan mín:/ finnst óhugnalegt þegar fólk á svipuum aldri og foreldrar mínir láta lífið svona skyndilega

Re: Dauði og djöf$&&

í Rómantík fyrir 15 árum, 1 mánuði
ooh ég er í sömu sporum, nema hann er bara 4 árum eldri en ég. Þegar ég er í kringum hann þá hljómar allt sem ég segi heimskulega og stundum koma orðin bara vitlaust beygð útúr mér sem gerir það að verkum að ég hljóma eins og 14 ára ekki 19 ára. en já þetta er samt meira gaman heldur en hitt

Re: Sárlega vantar...

í Rómantík fyrir 15 árum, 1 mánuði
hljómar veeeeeel hefði ekki getað orðað þetta betur sjálf

Re: Virðing við hina dauðu?

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
held það sé rétt hjá þér, fannst þetta líta asnalega út hjá mér. Dæi lítur betur út en er samt ljótt haha.

Re: Virðing við hina dauðu?

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
Ég hugsa að ég myndi halda kjafti ef einhver sem mér væri illa við dæji(?) af 2 ástæðum: 1) af virðingu við aðstandendur 2) og svo geta þeir ekki svarað fyrir sig en það er munur á að halda kjafti og fara að lofa einhvern skíthæl bara því hann er dauðu

Re: Er ég goth núna eða?

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
haha

Re: Fólk að gata og tattúvera dýrin sín?

í Húðflúr og götun fyrir 15 árum, 2 mánuðum
veistu það er nógu erfitt fyrir mig að klippa klærnar á kettinum mínu, get ekki ímyndað mér viðbrögðin ef ég myndi fara að gata á henni eyrun. En ef ég myndi gera það myndi passa mig á að klippa klærnar fyrst

Re: Run - Snow Patrol

í Rómantík fyrir 15 árum, 2 mánuðum
elska það með snow patrol. Með leona Lewis(?) ekki svo mikið

Re: Fordómar

í Húðflúr og götun fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Haha, já ég sá þetta viðtal. Ég myndi nú ekki segja að ég væri með fordóma gagnvart tattúum og götum, og þó. Nei andskotinn hafi það. Verð bara að viðurkenna að í mínum nánasta vinkvennahóp eru 2 með lítil tatto og enginn með göt á öðrum stöðum en í eyrum. Svo þegar ég sá þetta viðtal þá gat ég ekki annað en starað á þennan gaur því ég man ekki eftir að hafa séð manneskju með svona mikið framan í sér. Var orðin hálf dáleidd og pældi svo mikið í því hvort að það hafi ekki verið sársaukafullt...

Re: Bítlarnir vs. Stones

í Rokk fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Bítlarnir af því þeir eru jú bítlarnir og mér fiinst nánast öll l0g með þeim góð. Og myndirnar þeirra eru awesome haha

Re: Rocky horror picture show

í Kvikmyndir fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Ég elska þessa mynd Orðin hefð fyrir því hjá mér og vinkonunum að dansa Time warp þegar við förum að djamma. Var mjög ánægð þegar það var spilað á Hressó fyrir ca 2 vikum síðan. Þessi mynd er klassík

Re: Rolling stones vs bítlanir

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Bítlarnir all the way!

Re: Vissir þú að það var sjálfstæðisflokkurinn sem sem hleraði síma landsmanna á árum áður?

í Stjórnmál fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Það er svosem allt gott og blessað sem vg segist ætla að gera og vill gera. En það er bara meira en að segja það. Öll loforðin um það sem þeir ætluðu að gera þegar þeir kæmust í stjórn, hvað varð um þau? Það eina sme ég hef séð þá gera er að tala, oft af sér því hlutir sem þeir vilja gera eru bara óframkvæmanlegir.

Re: Rassagrip. (treystu mér, það er orð)

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Finnst það pínu óþægilegt. Eftir á soldið flattering. En samt weird Mundi aldrei hrífast af gaur sem hefði klipið mig í rassinn

Re: 1000 kr. virði?

í Kvikmyndir fyrir 15 árum, 2 mánuðum
horfðu á hana

Re: Einhleypni (sem er jú bara víst orð).

í Rómantík fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Ég er einmitt buin að sætta mig við að vera krónískt einhleyp. Eini maðurinn í lífi mínu heitir Tryggur og hefur 4 lappir og sambandið er á engan hátt kynferðislegt. Ég hef allavega einhvern til að kúra með

Re: little black dress is out!

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Ég sem stóð í þeirri trú að það vri snilldin við little black dress, að hann færi aldrei úr tísku

Re: skilríki

í Rómantík fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Hahahaha really??

Re: Að sofa nakinn

í Tilveran fyrir 15 árum, 2 mánuðum
sef í miklum fötum, þykkum náttbuxum, hlýrabol og venjulega langerma eða rúllukragabol yfir. Er stundum það kalt að ég sef líka með flísteppi undir sænginni. Ég er pínu kuldaskræfa
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok