Umönnun og aðhlynning aldraðra? Skítakaup og vaktavinna í þokkabót. Þarft að skeina og baða fólk. Getur lent í ælu, niðurgangi, þarft að þrífa hor, slef, stírur og gervitennur, fengið skítkast frá fólkinu sem þú hefur verið að hjálpa og stundum er komið fram við þig eins og hund. Þarft að díla við erfitt gamalt fólk sem liggur á bjölluni því það þarf að stilla hitann á ofninum, loka glugga, opna glugga, svara heimskulegum spurningum etc etc og díla við aðstandendur sem þykjast vita allt best...