Mér finnst furðumargir í kringum mig ætla að skila inn auðu um helgina og ég kemst ekki yfir það hversu heimskulegt það er. Þau segjast vera að mótmæla en í raun eru þau bara að hjálpa flokkunum sem þau myndu ekki kjósa að komast til valda. Allavega það sem ég er að meina með þessu er það að ef þið eruð ógeðslega reið útí stóru flokkana Sjálfstæðiflokkinn, Samfylkinguna eða VG kjósið þá þessa nýju og litlu flokka og leyfið þeim að koma mönnum á þing. Borgarahreyfingin hefur t.d. aldrei verið með neitt kjaftæði og kemur alltaf hreint til borðs og verður hún öflug í stjórnarandstöðu.

Munið bara autt atkvæði er dautt, skilið inn hverju sem þið viljið en að skilja inn auða afrekar ekki neitt.