Verð bara að spyrja að þessu…

Þegar þið voruð að kynnast ykkar núverandi (tja, eða einhverjum fyrrverandi ef þannig liggur í því), var eitthvað við ykkur sem þið skömmuðust ykkar fyrir?

Sjálf var ég tiltölulega nýbúin að lita á mér hárið mjög dökkt þegar ég var að kynnast mínum og var alltaf að tönnslast á (vara hann við?) því að ég væri í alvörunni rauðhærð, “Þannig, passaðu þig bara.” Því eins og alþjóð veit er náttúrulega bannað að vera rauðhærður!!

Einhver? :)