Já, ég væri til í að skoða þetta allt. Ég er samt mest spennt fyrir Asíu, s.s. Japan, Indlandi, Kína, Víetnam o.fl. Svo vil ég fara eitthvað um Ástralíu, Nýja Sjáland, Hawaii og svo S-Afríku og enda á S-Ameríku og skemmtilegast væri að fara á Suðurskautslandið líka! Annars var ég mikið að spá í að fara í svona fyrir nokkru síðan og þá fann ég alveg frábæra síðu sem þú hefur örugglega líka fundið; www.airtreks.com. Þar getur maður bara valið löndin sem maður vill fara til, sjá verðið og panta :D