Myndin Poseidon vekur vissulega fleiri spurningar en hún svarar, enda ekki mynd af þeirri gerðinni sem er ætlað að svara neinum spurningum. Skipið í myndinni er óneitanlega stórfenglegt og fallegt, meðan það er á réttum kili. 86.000 tonna rafdieselrisi með öllu því sem hugsast getur um borð í slíkum farkosti. Skip fá á sig brotsjói og til eru brot sem geta hvolft slíku skipi. Slíkt hendir, shit happens. Það er svosem ekkert við aðdraganda slyssins að athuga, skipið er þungt og lætur ekki að...