Það er rétt, gagnvirkar vefsíður sem framleiddar eru “on the fly” á server eiga ekki möguleika á að vera gripnar upp af leitarvélum. Vefstjórnarkerfi sem sífellt búa til nýjar, en varanlegar síður utan um hverja einingu, grein eða frétt, eiga mun meiri möguleika. Hinsvegar skapast vandamál varðandi leitarorð á slíkum síðum og reynslan sýnir að MSN og Google skrá eitthvert brot þeirra en sú leit verður oftast mjög þokukennd.