Ekki gæti ég sofið hjá þessari stelpu, vitandi það að vinur minn hefði verið með henni. Aldrei aftur sennilega… Ræða málin? Jú, kannski. En hversu erfitt sem það er, þá finnst mér að skynsamlegast væri að reyna að gleyma henni..
Og ég vil endilega bæta því við að everybody og everyone virka líka sem 3. persóna. Þú segir ekki everyone are, were, have… Heldur Everyone is, was, has.
Jú það er það. Hef svolitlar áhyggjur af þessu, hérna í Hfj. er ‘92 árgangurinn a.m.k mjög stór, stærri en ’91 var, og stærri en '93 er núna. Annars ætti ég alveg að ná þessu, hef aldrei verið að fá eitthvað lélegar einkunnir:)
Ertu að segja að það þurfi HÆRRI einkunnir til að komast í MH og versló? og ég sem hef heyrt að verzlingar komast oft bara inn á klíkuskap og með því að borga meira en uppsett verð…
Þegar maður er vanur að fá 9-10 í fögum eins og stærðfræði og náttúrufræði og allir ganga um segjandi að enska sé svo mikið “common sense” e-h, þá líður mér illa yfir að fá “bara” 8,5.
Ég held það séu klíkur allsstaðar, annars veit ég ekki…Hef heyrt margt gott og svo sumt slæmt um MR, sem og aðra skóla, en ég held að hann henti mér bara fínt svo ég læt á það reyna a.m.k. Eða ég stefni á það allavega.
Haha já, nákvæmlega. Manni langar svona að prófa að breyta til:P Annars stóð til að fara bara í Verzló og Flensborg, þeir hættu nú samt við Verzló ferðina, ég veit ekki afhverju… En mér er sama, ég hef lítinn áhuga á Verzló.^^
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..