Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

beita
beita Notandi síðan fyrir 20 árum, 9 mánuðum 100 stig

prentun á fatnað (1 álit)

í Heimilið fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hæ, ég er aðeins farin að huga að jólagjöfum og var að spá að láta prenta á handklæði, er einhver sem getur bent mér á eitthvert fyrirtæki sem sér ekki bara um að prenta á fatnað fyrir fyrirtæki?

Fjórar yndislegar læður fást gefins (1 álit)

í Kettir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Fjórar átta vikna blíðar og hreinlátar, kassavana dömur vantar gott og öruggt heimili, erum stödd í skagafirði en getum komið þeim suður og eflaust á Akureyri ef það þarf, ætla að reyna að láta inn myndir en er tölvufötluð!! Endilega hafið samband PS þær eru alveg einstaklega fallega

Gáfa? (0 álit)

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Vitringurinn kveikir sér í sígarettu og klórar sér í hausnum yfir heimsku jarðarbúa.

Hunted by a number!!! (2 álit)

í Dulspeki fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Vinkona mín hefur að undanförnu verið ásótt af vissri tölu sem á víst að tákna skrattann, hún fékk sundkort sem var númer 666, flugmiða með sömu tölu og ýmislegt í svipuðum dúr… Og fyrir ekki svo löngu fann hún öfugan kross inni á almenningsklósetti og var bandið á krossinum slitið. Hún geymir krossinn inní herberginu sínu uppí hillu en inní þessu herbergi er reimt og hefur það verið að færast í aukana. Eitt sinn eftir að hún vaknaði upp eftir vondan draum var hún sannfærð um að ef hún gengi...

Óvinur! (4 álit)

í Sorp fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég svitna og lít taugaóstyrk í kringum mig þegar ég totta þig af mikilli áfergju bak við skólann. Ég sýg úr þér allann mátt en með gremju geri ég mér grein fyrir því að þú hefur yfirbugað mig. Þessi barátta milli okkar endaði með dauða þínum en samt tapaði ég… Þó ég hitti þig aldrei aftur munu bræður þínir koma og gera mér lífið leitt. Ég hata þig og alla fjölskyldu þína sem er að hafa af mér pening vegna þess að ég þarfnast ykkar. Helvítis sígarettur!

Pillan? (3 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Eftir 5-6vikur eignast ég tvo kettlinga, högna og læðu, ég held ég ætli að gelda högnann en mig langar kannski að leyfa læðunni að eignast allavega einu sinni kettlinga, þannig að mig langar ekki að taka hana úr sambandi alveg strax, var að spá í að láta hana á pilluna en svo las ég á huga pillan væri krabbameinsvaldandi.. er eitthvað til í því? Afsakið fáfræðina en eru til margar pillutegundir fyrir ketti(eins og hjá mönnum)? Eða er kannski til einhver önnur leið?

Á kamrinum... (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Mátti reyna, mig að skeina, rassinn “hreina” á kamrinum. Vil því leyna; ég fann steina milli greina í farminum.

Falskur hlátur (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Falskur hlátur víða hljómar, heimskan breiðir vel úr sér. Fólkið einsog flöskur tómar, fegurð innri engin er.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok