Ég svitna
og lít taugaóstyrk í kringum mig
þegar ég totta þig af mikilli áfergju bak við skólann.
Ég sýg úr þér allann mátt
en með gremju geri ég mér grein fyrir því að þú hefur yfirbugað mig.
Þessi barátta milli okkar endaði með dauða þínum
en samt tapaði ég…
Þó ég hitti þig aldrei aftur
munu bræður þínir koma og gera mér lífið leitt.
Ég hata þig og alla fjölskyldu þína
sem er að hafa af mér pening vegna þess að ég þarfnast ykkar.

Helvítis sígarettur!