Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

bar
bar Notandi frá fornöld 51 ára karlmaður
90 stig
Áhugamál: Forritun, Stjórnmál, Deiglan

Eitt hundrað Boeing þotur, takk fyrir ! ! ! (11 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Komið þið sæl…eftirfarandi er smá hugleiðing um einokunaraðstöðu Flugleiða á íslenskum markaði. Stærsta lággjaldaflugfélag Evrópu, Ryanair, lagði um daginn inn pöntun upp á 100 stk. Boeing þotur. (http://www.guardian.co.uk/airlines/story/0,1371,638627,00.html) Þetta er í samræmi við þá staðreynd að lággjaldaflugfélög eru að raka inn seðlum, meðan stóru “okurfyrirtækin”, svo sem British Airways, American Airlines og Flugleiðir eru að tapa grimmt. Sem dæmi um tölur: Hágjaldaflugfélögin:...

Ósjálfstæðismenn (30 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Jæja. Þá er það opinbert. Lengi hefur maður vitað að fáir eru ósjálfstæðari á landinu, en aðilar í Sjálfstæðisflokknum. Þeir hafa lengi deilt á aðra flokka fyrir það sem þeir kalla klofning eða sundrungu, en kallast á mannamáli sjálfstæðar skoðanir og framkvæmd málfrelsis. Verði einhver flokkur uppvís af því að aðilar innan hans eru ekki á sama máli, er Sjálfstæðisflokkurinn fljótur að stökkva upp og hrópa “sundrung”, “klofningur” eða eitthvað ámóta heimskulegt. Nú er sem sagt orðið opinbert...

Bætur fyrir börnin? (45 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Komið þið sæl. Nýverið las ég grein (svar) eftir ónefndan mann, sem lagði það til að ríkisstjórnin ætti að hætta “að greiða foreldrum bætur fyrir að eignast börn”. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að skilja þetta, en tel líklegt að átt sé við fæðingarorlof og barnabætur. Ég svaraði manninum ekki, enda ekki svaravert. Þegar maður númer 2 lýsti sig hinsvegar sammála, þá ákvað ég að svara með þessari grein. Ég mundi gjarnan vilja vita hvort að menn séu almennt á þeirri skoðun að hætta beri...

Eru fyrirtækin allt? (8 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Tilefni þessarar greinar minnar er eftirfarandi setning: “Verkalíðsfélög (sic!) hafa altaf (sic!) verið til vandræða og hafa haft alltof mikið frelsi það er skilda hvers hugsandi manns að bera hag fyrirtækjana fyrir brjósti því þau koma með auðlegðina.” Rökrætt var um M.Thatcher og hvernig henni tókst til við stjórn Bretlands á sínum tíma. Það sem mig fýsir að vita, er þetta. Koma fyrirtækin ein og sér með auðlegðina? Nú man ég alltaf eftir sögu af H.Ford, sem uppi var um aldamótin 1900...

Hvar verður skorið? (41 álit)

í Stjórnmál fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jæja. Þá er háttvirtur Davíð búinn að upplýsa að yfirvofandi séu gríðarlegar sparnaðaráætlanir. Milljarðar munu víst sparast og þjóðin bíður með öndina í hálsinum….hvar mun hnífnum verða beitt? <br> Gaman væri að heyra ágiskanir fólks varðandi hvað verður skorið niður og jafnvel rökstuddar vangaveltur um hvar ÆTTI að skera niður. <br> Sjálfur tel ég ljóst miðað við fyrri störf þessarar ríkisstjórnar, að skorið verður niður þar sem íslendingar standa verst. Nú, Íslendingar standa sig með...

Konur eru konum verstar! (20 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
1. Þar sem ég er karlmaður sem menntaði mig í hefðbundnu kvennastarfi, hef ég unnið á fleiri kvennavinnustöðum en ég kæri mig að muna eftir. Hvað stendur uppúr? Jú….konur virðast ófærar um að gagnrýna hvor aðra ,,face to face“. Öll gagnrýni fer fram meðan viðkomandi er fjarstaddur og er yfirleitt óvægnari en nokkrum karlmanni dytti í hug (afsakið alhæfinguna). Í stað þess að leika þennan endalausa píslarvottaleik og kenna karlmönnum um allt sem miður fer í kvennréttindabaráttu, ættu konur að...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok