Í dag var stór dagur hjá Mjölni. Fyrst mættu um hundrað manns á æfingu kl 18:00 þar sem alls tíu manns voru látnir þreyta “Iron-man” þolraun þar sem þeir glímdu við nýja og ferska æfingafélaga í um tuttugu mínútur hver án þess að fá hvíld. Að því loknu var níu þeirra gefið bláa beltið og sá tíundi, Sighvatur Helgason, fékk fjólubláa. Sighvatur er aðeins 17 ára og eins og flestir muna þá keppti hann í fullorðinsflokk á Opna Skandinavíska þar sem hann fór með sigur úr bítum. Við óskum þessum...