Í dag var stór dagur hjá Mjölni.

Fyrst mættu um hundrað manns á æfingu kl 18:00 þar sem alls tíu manns voru látnir þreyta “Iron-man” þolraun þar sem þeir glímdu við nýja og ferska æfingafélaga í um tuttugu mínútur hver án þess að fá hvíld. Að því loknu var níu þeirra gefið bláa beltið og sá tíundi, Sighvatur Helgason, fékk fjólubláa. Sighvatur er aðeins 17 ára og eins og flestir muna þá keppti hann í fullorðinsflokk á Opna Skandinavíska þar sem hann fór með sigur úr bítum.

Við óskum þessum nýju blá og fjólublábeltingum til hamingju með árangurinn.

Eftir æfinguna tilkynnti stjórn Mjölnis að von væri á James Davis aftur til Mjölnis. James er félagsmönnum vel kunnugur og kenndi þrjá mánuði hjá félaginu við miklar vinsældir í fyrra. Nú stefnir hann á að vera í a.m.k eitt ár.

Stórtíðindi kvöldsins voru svo að Mjölnir er að fara að stækka! Við höfum tryggt okkur húsnæðið við hliðina á okkar húsnæði og fáum það afhent um mánaðarmótin. Þá tökum við niður veggina og klárum að innrétta í desember ef vel gengur. Þetta er meira en 50% stækkun á æfingaplássinu!

Mjölnir er því stærsta MMA gym á Íslandi með:

550m2 gym.
Tveir stórir salir. Sem hægt er að sameina í einn risa sal.
Alvöru keppnisbúr (octagon)
Fullkomin aðstaða fyrir réttstöðu, hnébeygju og bekkpressu.
200 Ketilbjöllur
Pro aðstaða fyrir MMA
Stór Clinch veggur
Ótal önnur æfingartæki tengt bardagaíþróttum og functional strength
Gufubað
Búningsklefar og sturtur
Setustofa með flatskjá þar sem hægt er að horfa á alla helstu MMA og BJJ viðburði.

Ekki má gleyma þjálfurum Mjölnis en þeir eru meðal annars:
Gunnar Nelson, svart belti í BJJ, Gunna þarf ekki að kynna.
James Davis, viðurkenndur þjálfari frá SBG, með pro MMA reynslu og gífurlega vinsæll þjálfari. Aðrir þjálfarar eru Jón Viðar, Bjarni B. og Daníel Örn.
Síðast en ekki síst, þá sjá Bjarni Skúla og Axel áfram um júdóið hjá okkur.

MJÖLNIR - áfram stærstir, bestir og auðvitað langflottastir! ;)

Hér má sjá myndir frá því í kvöld:
http://www.flickr.com/photos/mjolnir_mma/sets/72157622524760327/
Árni Þór - Mjölnir/SBG