Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

astas
astas Notandi frá fornöld 0 stig

Re: Re: þó mar se þunglyndur á ekki að fremja sjálfsmorð=(

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Það er nú það msk. Ég get bara ýmindað mér að það sé hræðilegt að lenda í svona vonleysi. Það hefur oft komið fyrir mig að ég sé ekki út úr hlutunum og allt virðist kolsvart í kring um mig en sem betur fer þekki ég ekki af eigin raun þunglyndi sem stendur lengur en nokkra tíma í einu. Með því að nota Pollýönnuviðhorfin og horfa á jákvæðu hlutina í lífinu hefur mér alltaf tekist að taka á málunum. Þegar eitthvað verður of erfitt þá bið ég Guð að leysa það og greiða mér leiðina og það er...

Re: Re: Það er ekkert sem afsakar sjálfsmorð.

í Rómantík fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Kæru krakkar. Ég kemst ekki hjá því að leggja aðeins inn í þessa umræðu. Svo vill til að bróðir minn framdi sjálfsmorð fyrir 12 árum síðan og þá var hann aðeins 23 ára. Honum hafði þó tekist að eignast þrjú börn sitt með hvorri konunni áður en hann dó og það yngsta fæddist 7 mánuðum eftir dauða hans. Fjölskylda mín hefur aldrei jafnað sig. Þetta áfall hefur skelfileg áhrif á alla fjölskyldumeðlimi. Mamma mín er alkóhólisti og var það áður er bróðir minn dó en eftir dauða hans missti hún...

Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: Re: Að hætta saman-Önnur saga

í Rómantík fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Kæri Porta. Þetta lítur ekki allt of út í augnablikinu hjá þér. Þú getur þó huggað þig við það að ef ást þín er svona mikil eins og þú tjáir þá fer ekki hjá því að konan hefur orðið vör við það jafnvel þó þú hafir ekki staðið þig í að rækta sambandið. Ef þú gefur henni svigrúm núna og tíma til að sakna þín ( mjög mikilvægt) þá mun hún muna eftir góðu stundunum og gera þá upp tilfinningar sínar til þín í sanngjarnara ljósi en hún gerir núna. Nú er hún sennilega sár yfir því að það sem hún...

Re: Að hætta saman-Önnur saga

í Rómantík fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Kæri Porta. Ég er viss um að kærasta þín hefur áreiðanlega gefið þér ýmiskonar bendingar um að sambandið hafi ekki verið nægilega gott. Það er nauðsynlegt í hverju sambandi að reyna að veita hvort öðru andlega næringu og sýna hvort öðru athygli. Það þarf að gefa hvort öðru tíma og strákar allir saman ef þið hlustið ekki á konurnar ykkar og sýnið þeim þar með að þær séu enhvers virði þá fara þær. Engin kona þarf í dag að vera með manni til að sjá sjálfri sér farborða jafnvel ekki ef börn eru...

Re: Re: Að hætta saman

í Rómantík fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Kæra Nala. Ég vil taka undir með Vargi sem hefur greinilega eins og ég lesið skrif þín á Huga og ráðleggur þér af innsæi og visku. Ég hef eins og þú kynnst því að eiga ekki allt of góða barnæsku og hef verið óörugg með mitt sjálf og látið aðra sjórna mér nokkuð sem ég vona að ég hafi með auknum þroska lagt að baki. Nala mín gefðu sjálfri þér tækifæri hlustaðu á hjarta þitt það segir þér alltaf satt. Það má vel vera að þú þurfir að kyrra hugann með rólegri músik við kertaljós. Þá er líka gott...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok