Everquest er án efa sá MMORGP sem er best studdur af öllum þeim leikjum sem hafa komið út! Á þeim tíma sem hefur liðið frá því að upphaflegi leikurinn kom út hafa komið út þrjár stækkanir, sem hafa ekki bara stækkað heiminn, heldur einnig breytt grafíkvélinni, stutt betur við trading skills, haldið áfram að þróa jafnvægi milli stétta í leiknum ásamt því að leyfa áframhaldandi þróun hetjanna eftir sem meðalreynsla spilara hækkar. Þessu til viðbótar er nú að koma enn önnur stækkun á leiknum...