WoW USA betan var mjög aggressive t.a.m. þá fengu heilu Everquest gildin beta accounts fyrir þau og takmarkið var augljóslega að tæla þá sem spila mikið yfir í WoW. Ég bendi t.a.m. á wow um umræður um WoW frá sjónarhóli Wizard í Everquest.

Þessi tækni virðist hafa tekist vel þar sem margir voru orðnir mjög þreyttir á CS í Everquest. Ég veit hins vegar ekki hvernig þetta mun virka í Evrópu en geri samt sem áður ráð fyrir því að þeir sem eru uberspilarar fái einhvers konar forgang inn í betuna þar.