Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Van Gaal verður ekki næsti þjálfari Man Utd. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Það er rómur á netinu um að van Gaal þjálfari Hollenska landsliðsins í knattspyrnu komi til greina sem næsti þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Manchester United. En Alex Ferguson hefur alls ekki sem skyldi það sem af er leiktíðinni. Van Gaal myndi samt ekki taka við liðinu fyrr en sumarið árið 2002. En Peter kenyen stjórnarformaður liðsins þaggaði þann róm niður þegar hann sagði “Alex Ferguson er frábær þjálfari og þótt van Gaal segist vera umsækjandi eða segist vera á topp lista yfir...

Roy Keane spilar ekki með Írlandi í Íran (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Írski landsliðsmaðurinn Roy Keane mun ekki leika seinni leik Írlands og Írans vegna hnémeiðsla sem tóku sig upp aftur hjá honum. Keane spilaði allar 90 mínúturnar í Dublin og enginn meðsli sáust á honum en þá sigraði Írland 2-0. Keane sem er leikmaður Manchester United hefur ekki leikið síðustu 6 leiki með Manchester og var hvíldur í leiknum gegn Liverpool út af landsleikjunum. Þjálfari írska landsliðsins Mick Marthy sagðist hafa talað við Roy í gær (10.nóv) og þá var fínn og að hann hefði...

Peysa nr. 10 verður ekki lögð niður í Argentínu (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Argentínska knattspyrnusambandið (AFA) ætlaði að taka lansliðstreyju 10 alveg úr gildi eftir minningarleik Maradona. Fifa hefur nú bannað þeim að gera það. AFA varð fyrir vonbrigðum við að heyra þetta en samkvæmt reglum FIFA er ómögulegt að hafa lið í númerum 1-23. Mardona sagði hins vegar að ef FIFA vildi banna þeim að leggja peysu 10 á hilluna væri það allt í lagi hans vegna. Hann vill aðeins að Argentískur fótbolti verði einn sá besti í heiminum. “Það skiptir mig engu ef það eru reglur...

Pizzaro sennilega á förum frá Udinese (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Guiglame Querini hefur staðfest að Udinese hefur fengið tilboð frá Deportivo la Coruna í Chileska leikmanninn David Pizzaro. Þjálfari Udinese sagði í blaðaviðtali: “Það er satt að við höfum fengið tilboð í Pizzaro frá Deportivo og Gino Pozzo (formaður spænskra félagsliða) er ábyrgur fyrir samningnum”. En Pizzaro mundi ekki koma til Deportivo fyrr en næsta sumarog hann staðfesti að hann mundi ekki fra frá Udinese þegar Evrópski kaupmarkaðurinn opnar aftur í Janúar.

Hús dauðans (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Hinn vinsæli tölvuleikur, House Of The Dead, er nú að verða að kvikmynd. Verður hún væntanlega í anda Resident Evil kvikmyndarinnar væntanlegu, og ætlar Mindfire Entertainment framleiðslufyrirtækið að gera hana fyrir um 20 milljónir dollara. Enn er ekki búið að festa leikstjóra né leikara á myndina, en verið er að vinna í þeim málum þar sem tökur eiga að hefjast nú strax í janúar.

Ný mynd frá Steven Sodherberg (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Enn hefur hlaupið á snærið hjá leikstjóranum Steven Sodherberg, því í leikhóp hans fyirr framhaldið af mynd hans, Sex lies and Videotape sem nefnist How To Survive A Hotel Room Fire og hefur nú bæst við leikkonan Julia Roberts en hún lék einnig í Erin Brockovich. Verða þá helstu leikarar myndarinnar Julia Roberts, Catherine Keener og David Duchovny.

The Sopranos (0 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Stöð 1 er nú byrjuð að sýna 3. syrpu hina frábæru mafíuþátta The Sopranos. Þar fara frábærir leikarar með helstu hlutverk á borð við James Gandolfini og Lorraine Bracco. Þættirinir eru margverðlaunaðir þá sérstaklega fyrir leik.

Leonard Maltin´s Movie Guide (0 álit)

í Bækur fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Bókin Leonard´s Maltin movieguide er stútfull af kvikmyndagagnrýnum eftir hinn fræga gagnrýnanda Maltin. Gagnrýnirnar eru allar með hans hefðbundnu stjörnugjöf. Lægsta einkunn “BOMB” og hæsta einkunn ****. Það eru yfir 19.000 gagnrýnir í bókinni og fyrir neðan hverja stendur eru tákn sem tákna DVD,VHS og Laserdisc. Þau sýna hvort þúgetir fengið myndina á einhverju af því. Það er mjög gaman að fletta bókinni og það geta svo sannarlega allir fundið gagnrýnir um kvikmyndir við sitt hæfi.

Planet of the Apes (2001) (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mjög góð útfærsla Tim Burton á Apaplánetunni sem kom upprunalega út árið 1968. Ég er samt ekki að segja að hún sé betri en gamla myndin. En förðun og tæknibrellur eru mun betri í þeirri nýju. En endirinn í gömlu myndinni er örugglega sá magnaðasti í kvikmyndasögunni. En myndin er um geimfarann Leo sem brotlendir á plánetu þar sem hann kemst fljótt að því að apar ráða ríkjum. Allt mannfólkið er þrælar,þjónar og jafnvel gæludýr. En það er allt kúgað jafn mikið. Leo vill ekki láta apana komast...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok