Hinn vinsæli tölvuleikur, House Of The Dead, er nú að verða að kvikmynd. Verður hún væntanlega í anda Resident Evil kvikmyndarinnar væntanlegu, og ætlar Mindfire Entertainment framleiðslufyrirtækið að gera hana fyrir um 20 milljónir dollara. Enn er ekki búið að festa leikstjóra né leikara á myndina, en verið er að vinna í þeim málum þar sem tökur eiga að hefjast nú strax í janúar.