Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Thailand eða Canari eyjar???

í Ferðalög fyrir 23 árum, 8 mánuðum
Danna: Ég hef ferðast mikið sjálf og heyrt ýmislegt frá Canary frá öðru fólki þannig að ég dreg mínar ályktanir. Það sem ég var að benda á, með kannski of mikilli hæðni, var aðallega það að ég sé engann mun á Canary og öðrum túristastöðum eins og Benidorm og Pattaya. Ef fólk vill upplifa eitthvað annað og öðruvísi þá myndi ég frekar mæla með því að skella sér til framandi menningarheima, eins og í þessu tilviki Thailands. <b> Hérna vil ég þess vegna benda á hvað við Íslendingar erum...

Re: Thailand eða Canari eyjar???

í Ferðalög fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Ertu ekki að djóka? Come on, þú hlýtur þá að hafa farið á einhvern hræðilegan stað eins og Pattaya eða álíka!!! Ekki nema þú sért svo anti ævintýramanneskja og viljir bara vera á huges túristastöðum þar sem þú getur fengið Mc donalds og Kentucky fried!!!! Beint af lonelyplanet.com: Canary islands offer the worst of mass tourism: concreted shorelines, tacky apartment block after tacky apartment block, and bars where you can pretend you've never left home! :þ

Re: Thailand eða Canari eyjar???

í Ferðalög fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Jamm… sammála fyrri ræðumanni! Thailand er æði!!! Ég hef reyndar ekki heldur farið til Canary en my first impression af staðnum er svona “gömlu fólks staður” Jaaa… ég veit amk ekki um neinn annan en ömmu mína sem hefur farið þangað… Ef þú vilt frábært djamm og æðislegt veður um jól og áramót þá mæli ég hiklaust með Thailandi. Farðu á Koh Phangan á Full Moon party til að djamma (passaðu þig bara á Thai viskíinu)… Koh Tao til að kafa, Koh PhiPhi eða Koh Chang til að liggja á ströndinni… Norður...

Re: En Malasía??

í Ferðalög fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Já, ég hef aftur á móti farið til Malasíu og margra annarra landa í SA- Asíu og þetta er algjör paradís :) Malasía er alveg æði, ég var þar í um 2 mánuði og hefði alveg verið til í að vera lengur! Kuala Lumpur er geggjuð borg, uppáhalds borgin mín í heiminum og ég hef nú komið til nokkuð margra… hún er í 1. sæti en á eftir henni myndi ég svo segja New York… Kuala Lumpur er frekar nýtískuleg borg, þar eru Twin Towers, hæstu byggingar í heiminum, KL- tower er líka flottur en uppí honum er...

Re: Paraguay??

í Ferðalög fyrir 23 árum, 9 mánuðum
Tékkaðu á lonelyplanet.com, það ætti að svara mörgum spurningum. Þar geturu skoðað Thorntree, sem er svona svipað og hér, þú getur spurt spurninga og fengið ráð hjá fólki. Ég efast stórlega um að margir Íslendingar hafi komið til Paraguay, common Íslendingar hugsa yfir höfuð ekki einu sinni svona langt! Flestir hafa ekki einu sinni hugmynd um hvar þetta land er… Því miður hef ég ekki komið þarna sjálf, en ég er á leiðinni einhverntíman - ég get kannski svarað þér eftir svona ár :)

Re: About a boy

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 10 mánuðum
já Nick Hornby er mjög góður rithöfundur að mínu mati. Þó svo að fólk hafi kannski orðið fyrir vonbrigðum með High fideality - myndina, þá er ekki þar með sagt að bókin sé léleg… ég veit reyndar ekkert um það en ég efast um að Nick Hornby sé eitthvað að leikstýra eða skipta sér af myndinni? (eru það ekki sömu framleiðendur af About a boy og Brdget Jones?)

Re: Interrail

í Ferðalög fyrir 23 árum, 10 mánuðum
nú… ég hélt að interrailkortin giltu bara í 1-3 mánuði? Hvar fékkstu svona “langt” kort eiginlega??

Re: Prófkvíði

í Heilsa fyrir 24 árum, 1 mánuði
Hæ Aldak Ég er alveg sammála síðustu tveimur ræðumönnum. Ég hef líka lent í svipuðu með próf, og það er mjög erfitt sérstaklega þar sem ég get varla sofið afþví ég er svo stressuð… hlakka heldur ekki mikið til minna prófa sem eru núna að nálgast :( (stúdentspróf) Ég mæli sérstaklega með að þú talir við námsráðgjafann í skólanum hjá þér, því þeir geta mjög oft hjálpað og ef þú lokast alveg í prófinu þá fær maður kannski aðeins auka tíma eða þú gætir fengið að vera í sérstofu. Það hjálpar líka...

Re: Draumaferðin !

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Mmmmm draumaferðin…. eitthvað sem ég er búin að vera að plana og láta mig dreyma um síðan ég kom heim úr síðustu ferð!! Draumaferðin yrði alveg blanda af öllu, heimsreisa sem tæki nokkur ár… það er svo rosalega margt sem hægt er að skoða… Það sem ég hef helst verið að hugsa um væri að fljúga líklega til Þýskalands og taka svo alla Austur Evrópu og skoða mig um þar. Þar á eftir væri það í gegnum Grikkland, Tyrkland og til Egyptalands þar sem ég væri sko alveg til í að stoppa í soldinn tíma og...

Re: Go lækkar fargjöld

í Fjármál og viðskipti fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er auðvitað frábært en mér finnst samt að þeir mættu fljúga meira, ekki hætta bara núna í október. Ég var t.d. að spá í að fara út í desember, þarf að fljúga í gegnum London og þar sem ekkert annað kemur til greina en helv**** flugleiðir, kostar bara flugið til London rúmar 40 þús krónur! Er það heilbrigt? Fyrir þennan pening er hægt að fljúga frá Evrópu og alla leið til Ástralíu (fram og til baka) með erlendum flugfélögum… mjög ósanngjarnt!

Re: Mig langar að vita

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
já, það er samt svo erfitt að gera upp á milli… ætli það sé ekki í augnablikinu Laos :)

Re: Hvernig væri..........

í Tíska & útlit fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er náttla alveg ágætishugmynd en það væri rosalega erfitt að koma þessu áfram eins langt og frægu merkin þar sem við höfum bara ekki þær auðlindir til þess að vera samkeppnishæf. Ekki nema gera eins og allir hinir og nota ódýra mannaflið í Asíu til þess að fjöldaframleiða… Annars finnst mér allir þessir íslensku hönnuðir vera standa sig mjög vel og þeir eru að vekja ágætis athygli að ég held úti. Svo er náttla X-18 að gera mjög góða hluti, og vörurnar hjá þeim fást orðið útum allan...

Re: Ferðir utanlands...

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Vááá… það eru svo rosalega margir æðislegir staðir sem ég hef komið til að það er mjög erfitt að gera upp á milli… Ég held ég verði að skipta þessu aðeins upp… Uppáhaldsborgin mín er alveg pottþétt Kuala Lumpur, lang skemmtilegasta borg sem ég hef komið til og margt hægt að gera, gott næturlíf og bara flott borg með góðu andrúmslofti og frábæru fólki. Ég væri sko alveg til í að búa þar í einhvern tíma… Yndislegast staður og uppáhalds “strand-staður” eru Perhentian eyjur í Malaysíu sem eru...

Re: Kanaríeyjar!

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
þú getur líka kíkt á : http://www.lonelyplanet.com/destinations/europe/canary_islands/ Lonely planet síðan er besta ferðasíða sem ég veit um, og þar er hægt að fá rosalega mikið af upplýsingum um hvaða staði sem er í heiminum… Skemmtu þér vel úti :)

Re: Uppáhalds staður innanlands !

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
ég verð að segja Vestmannaeyjar… ég hef nú ferðast útum allan heim en alltaf stendur Heimaey ofarlega á blaði hjá mér yfir fallegustu staði í heimi. Málið er bara að það eru svo fáir sem hafa virkilega farið til Vestmannaeyja, fyrir utan á Þjóðhátíð eða eitthvað álíka… og fólk veit í rauninni ekki hverju það er að missa af, það er svo margt hægt að sjá og skoða… Mér finnst allavega fátt yndislegra en að sitja uppí hrauni og horfa á heimaklett á fallegu sumarkvöldi…

Re: Verslunarferðir????

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er ekki neitt annað en sölubrella. punktur.!! Íslendingar geta bara svo oft verið svo vitlausir og halda alltaf að það sé allt svo ódýrara alls staðar annars staðar… það getur oft verið eitthvað aðeins ódýrara en það er ekki það mikill munur að það taki því að fara í sér verslunarferð þar sem þú endar örugglega með að eyða miklu meira, bæði í það sem er óþarfi + svo auðvitað uppihald og þessháttar. Til að taka sem dæmi þá held ég að gjörsamlega allir evrópubúar (nema Íslendingar?) viti...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok