Draumaferðin ! Þar sem það er ekkert mjög mikið að gerast á þessu áhugamáli þatt mér í hug að skrifa inn grein um draumaferðina mína.

Draumaferðin mín er tennskonar

Ein ferðin væri að fara til Spánar, Ítalíu eða einhverstaðar þar nálægt Miðjarðarhafinu. Vera svo stund og stund á ströndinni, fíflast í sjónum og fara svo nógu oft í Go kart og fara allavega 2 í tívolí og vera allan daginn í einhverju 110% adrenalínflæðandi tæki (smá adrenalín fíkill hér) Svo væri ég til í að fara á svifdreka og fljúga niður af einhverju fjalli í heitu og góðu veðri. Og vo auðvitað að láta draga mann í fallhlíf á bát. Á kvöldin væri síðan bara djammað fram á morgun.

Hin draumaferðin er að fara í Interrail ferð kringum Evrópu með nokkrum vinum, koma við í Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi og jafnvel Spáni og Ítalíu. Prufa síðan að ferðast líka smá á puttanum í t.d. Frakklandi. Eitthvað sem mig hefur alltaf dreymt um.

Hvað er með ykkur hin, í hvernig ferð væruð þið mest til í að fara ?
Kv, Steini