Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar ég heyrði þetta lag fyrst, fannst það óþjált í söng, allt of “texas-legt”, þ.e ótaktvisst, sem þarf að vera í lögum sem allir eiga að syngja saman. Svo var það nú svo að ég söng þetta lag allmikið með skátakórnum og mér fannst það skemmtilegra eftir því sem ég söng það oftar og nú finnst mér það skemmtilegt, eins og er svo oft með lög. En það er annað sem má ekki gleymast í umræðunni um landsmótslög. Það er sama hversu skemmtileg eða leiðinleg lög eru, það...