Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Hundar (0 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hérna er önnur mynda af sleðahundum, sem eru örugglega með svalari dýrum sem til eru. Hérna er verið að gefa þeim.

Hundar (0 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Þarna eru nokkrir sleðahundar frá Kanada.

PS2 - hjálp!!!! (1 álit)

í The Sims fyrir 20 árum, 2 mánuðum
Mig vantar smá hjálp. Þetta er í annað skiptið sem ég sendi inn hjálparbeiðni því að í fyrra skiptið var henni ekki svarað. Þannig að ef einhver getur hjálpað mér þá væri það frábært því að ég er stopp en langar að geta spilað meira. Ég er að spila sims í PS2. Ég bý með fyrsta sambýlismanni mínum og á að halda partý og flytja út með einhverjum í partýinu. Mér tekst það hins vegar ekki. Ég er búin að halda óteljandi partý og gera allt sem mér dettur í hug en ekkert gengur. Ég er búin að...

Sims í PS2 (3 álit)

í The Sims fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ég er að spila Sims í PS2 og er í smá vandræðum. Ég er föst því ég get ekki haldið nógu gott partý og flutt út með einhverjum. Getur einhver sagt mér hvernig á að komast áfram þarna, ég er búin að vera föst þarna rosalega lengi.

Vírusviðvörun!!! (1 álit)

í Húmor fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Stórhættulegur vírus!!! Eftir áreiðanlegum heimildum leyfi ég mér að senda þér þessa viðvörun: Það er komin nýr vírus í umferð og heitir hann “vinna”. Ef þú færð vinnu“ frá vinum eða kunningjum eða yfirmanni þínum sendan með tölvupósti eða á annan hátt, ekki hreyfa við ”vinnu“ á nokkurn hátt. Vírusinn eyðir einkalífinu gersamlega!!! Taktu jakkann þinn og tvo góða vini og farðu á næsta bar og pantaðu þrjá bjóra. Ef þú endurtekur þetta 14 sinnum, kemstu að því að vírusinn ”vinna“ eyðist alveg...

Mælieiningar (2 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Þó að gaman sé að nota erlendar eða gamlar uppskriftir geta framandi mælieiningar oft valdið vandamálum. Þessi pistill ætti að leysa nokkur slík vandamál. Rúmmál/vökvi: 1 dram = 3/4 tsk (8 dram = 1 únsa) 1 únsa (oz) = 2 msk (8 únsur = 1 bolli) 1 bolli (cup) = ca 2,4 dl (2 bollar = 1 pint) 1 pint = ca 5 dl (4,7 dl) Þyngd: 1 únsa (oz)= ca 30 gr (28,4 gr) (16 únsur = 1 pund) 1 pund (lb)= ca 450 gr Hitastig (svona þessi algengasti ofnahiti í °C): 100°C = 212°F 150°C = 302°F 170°C = 338°F 175°C =...

Einföldar en margslungnar pastasósur (1 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eftir að vera komin með þónokkra leið á pakka-pastasósum ákvað ég að prófa mig áfram með sósugerð og komst að því að heimatilbúnar sósur eru mjög einfaldar og að sjálfsögðu miklu betri. Rauð sósa (handa 2) Fyrst er það hráefni (t.d. grænmet, skinka) sem hugurinn grinist skorið smátt og léttsteikt á pönnu, ég nota oftast lauk, papriku, sveppi, ananas, skinku og blaðlauk. 1 dós tómatpúrra (miðstærð) ca 1/2 - 1 bolli vatn (rjómi í staðinn ef hann er til) krydd eftir smekk, ég set pipar,...

Hjálp í Jak&Daxter (1 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 1 mánuði
Halló! Fyrst vil ég byrja á að hæla Jak&Daxter sem er búin að spila non-stop frá því að ég fékk hann! En er ekki einhver sem er búinn með leikinn og getur aðstoðað mig örlítið. Málið er að ég á eftir að fá 2 powercells en veit ekki hvernig ég á að fara að því. Þessi 2 sem eftir eru, eru í Volcanic crater, mig vantar s.s. seinustu fluguna og powercellið þar við hliðina, þ.e. næst seinasta powercellið í röðinni í volcanic crater. Getur einhver sagt mér hvað ég á eiginlega að gera því ég er enn...

Mælieiningar (2 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Mælieiningar valda manni oft vandræðum sérstaklega ef erlendar uppskriftir eru notaðar. Hérna er smá listi sem gæti hjálpað ykkur! Rúmmál/vökvi: 1 dram = 3/4 tsk (8 dram = 1 únsa) 1 únsa (oz) = 2 msk (8 únsur = 1 bolli) 1 bolli (cup) = ca 2,4 dl (2 bollar = 1 pint) 1 pint = ca 5 dl (4,7 dl) Þyngd: 1 únsa (oz)= ca 30 gr (28,4 gr) (16 únsur = 1 pund) 1 pund (lb)= ca 450 gr Hitastig (svona þessi algengasti ofnahiti í °C): 100°C = 212°F 150°C = 302°F 170°C = 338°F 175°C = 347°F 180°C = 356°F...

Fiskur í álpappír (0 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 1 mánuði
OFNFISKUR I ÁLPAPPIR -uppskriftin er mjög “cirkabout” -Fiskur (t.d. þorskur eða ýsa eða annað góðmeti) -Grænmeti (t.d eru gulrætur, laukur og sveppir mjög góð samsetning, paprikan stendur líka alltaf fyrir sínu, hef líka prófad hana med vorlauk og baunaspírum) -Klípa af smjöri -Skvetta eplasafi eda hvítvín ef menn vilja vera fínir á því -Salt og pipar -Sýrdur rjómi (ef vill) Fiskflökin skorin i mátuleg stykki og lögð á álpappírinn, krydduð med salti og pipar Grænmeti skorið, passa þarf ad...

Sex on the beach (1 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Hérna er uppskrift af Sex on the beach sem er rosalega góður drykkur. 3 cl ferskjulíkjör (Það er til koskinkorva peach í ríkinu sem er ódýrt og gott) 2 cl vodka 1 cl ananassafi 1 cl cranberry (trönuberja) safi. Ég nota samt chiquita grape & berry í staðinn. Klakar Grenadin eða jarðarberjaíssósa Áfengi og klakar hrist saman, safa bætt úti og gott er eða setja smá grenadín en jarðarberjaíssósa gerir sama gang! Verði ykkur að góðu

Escape from Monkey Island (8 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég var að hugsa um að fá mér Escape from Monkey Island en langaði til að vita hvort einhver þekkti þennan leik og gæti gefið mér góð ráð. Er hann þess virði að kaupa hann? Ég fann ágæta síðu um leikinn á netinu, þar er einnig hægt að spila lítinn leik sem heitir “Insult Arm Wrestling” Slóðin er: http://www.lucasarts.com/products/monkey4/

Líkamsrækt (2 álit)

í Heilsa fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Langar ykkur í árskort í baðhúsið á 20900 í staðinn fyrir 49500???? Ef svo er sendið mér þá email á annaei@hugi.is Anna

Daumur konu (7 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kona ein sat á bar ásamt vinkonum sínum eftir vinnudag ,þegar hrikalega myndarlegur og rosalega sexy ungur maður gekk þar inn. Hann var svo eftirtektarverður að konan gat með engu móti hætt að stara á hann. Ungi maðurinn tók eftir athyglinni sem hann fékk frá konunni, gekk beint til hennar og sagði: Ég skal gera hvað sem ,HVAÐ SEM ER og hversu afbrigðilegt sem það er fyrir 2000 kr.með einu skilyrði. Orðlaus af undrun spurði konan hvað þetta skilyrði væri. Ungi maðurinn svaraði:Þú verður að...

15 ástæður fyrir því að eiga hund en ekki kærustu (9 álit)

í Hundar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
1. Hundar dýrka það, þegar vinir þínir koma í heimsókn. 2. Hundar eiga ekki von á því að þú hringir þó þú sért seinn. 3. Því seinni sem þú ert, þeim mun ánægðari eru þeir að sjá þig. 4. Þeir fyrirgefa þó þú leikir þér við aðra hunda. 5. Þeim er alveg sama þó þú gefir afkvæmin. 6. Hundum finnst gaman þegar mikið drasl er á gólfinu. 7. Foreldrar hundsins koma aldrei í heimsókn. 8. Hundar skilja að eðlið er betra en að vera sífellt spyrjandi. 9. Hundar hata ekki rassinn eða lærin á sér. 10....

Nískupúki (4 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Góðgerðastofnun nokkur, í litlum bæ úti á landi, var að átta sig á því að aðfluttur lögfræðingur hafði aldrei gefið krónu til góðgerðamála. Þrátt fyrir að samkvæmt opinberum gögnum væri hann með tugi milljóna í árstekjur. Svo þeir ákváðu að hringja… “Samkvæmt okkar gögnum hefur þú aldrei gefið til góðgerða eða líknarmála, þrátt fyrir mikla velgengni. Má ekki bjóða þér að borga samfélaginu eitthvað til baka?” Lögfræðingurinn velti þessu aðeins fyrir sér, en segir síðan: “Í fyrsta lagi, sögðu...

Tíska gengum árin (4 álit)

í Tíska & útlit fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég hef verið að skoða mikið gamla Eurovision keppnir undanfarið og verð að benda á hvað það er rosalega gaman að pæla aðeins í tískunni í Eurovision. Hún endurspegla að miklu leyti tískuna sem var ríkjandi á meðan á keppnunum stóð. Ef við tökum sem dæmi Cliff Richard sem tók þátt í keppninni árið 1968 með laginu Congratulations. Hann var í alveg eins fötum og Austin Powers er þekktur fyrir. Dökk flauels-jakkaföt og blúnduskyrta. Fyrir utan það hvað hann var nú sætur á þessum tíma þá gera...

Seinasti séns... (0 álit)

í Bretti fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég vildi bara benda á að þessi helgi (11-13 maí) er seinasta helgin í vetur sem er opið í Hlíðarfjalli, Akureyri. Það er víst ágætis færð og veðrið fínt, þokkalega ætla ég að fara!!!! Hvet ykkur eindregið til að mæta! Hittumst í fjallinu…!

Fleygar setningar úr tjónaskýrslum (0 álit)

í Húmor fyrir 22 árum, 11 mánuðum
“ Gulli var gestkomandi hjá Önnu og Jóni. Gulli þurfti skyndilega að kasta upp og fór inn á baðherbergi og kastaði upp í klósettið. Anna stóð yfir honum og sturtaði niður þegar hann hafði lokið við að kasta upp. Við uppköstin missti Gulli lausan tanngóm í klósettið, en tók ekki eftir því fyrr en hann fór út úr baðherberginu.” “…við byrjuðum að taka U-beygju en þurftum að bíða eftir að bílarnir sem komu úr gagnstæðri átt væru farnir en eftir nokkurra sekúndna biðklessir bíll inn í okkur og...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok