Mig vantar smá hjálp. Þetta er í annað skiptið sem ég sendi inn hjálparbeiðni því að í fyrra skiptið var henni ekki svarað. Þannig að ef einhver getur hjálpað mér þá væri það frábært því að ég er stopp en langar að geta spilað meira.

Ég er að spila sims í PS2. Ég bý með fyrsta sambýlismanni mínum og á að halda partý og flytja út með einhverjum í partýinu. Mér tekst það hins vegar ekki. Ég er búin að halda óteljandi partý og gera allt sem mér dettur í hug en ekkert gengur. Ég er búin að eignast góða vini en þeir vilja samt ekki búa með mér. Ég er því föst þarna og langar að komast áfram.

Veit einhver hvernig á að fara að þessu? Getur einhver hjálpað mér?